Bjarni axlar ábyrgð..

Bjarni Harðarson gerirm slæm mistök, en sýnir þann manndóm að gangast við þeim strax og segja sig frá þingmennsku og biðjasr afsökunar. Það eru fáir í hópi þingmanna sem hafa verið menn til að breggðast við afglöpum sínum á þennan veg. Hægt er að tína upp nöfn manna sem tildæmis hafa verið sauðdrukknir við akstur, teknir fyrir þjófnað, farið glannalega með annarra fé í skjóli opinberra embætta  staðið að rógi um fólk til að koma sjálfum sér í betri stöðu og væna andstæðinga um alskyns vammir og skammir í skjóli nafnleyndar. Allir sem einn frýja menn sér ábyrgðar, ef upp kemst og sija sem fastast, tala út og suður ef upp kemst, og á þetta er minnst. Allir menn hafa galla og veikleika. Bjarni var svo seinheppinn að þetta óskiljanlega bréf fór fyrir sjónir almennings, og því fór sem fór. Þarna var húmorinn kominn úr böndunum. Á sama tíma keppast menn og konur við að breiða út allskonar sögusagnir sem gripnar hafa verið úr lausu lofti og láta svo hneyslan sína í ljós til að hnykkja á fréttum sem þeir eða þær hafa ýtt af stað í anda Gróu á Leiti. "Já heillin mín, ólygin sagði mér" hóf hún oft sinn fréttaflutning. Samt er þessi aðför að Valgerði Sverrisdóttur ósmekkleg og engum til frægðar. En Bjarni tekur strax réttan pól í hæðina, og hveryr á braut.


mbl.is Guðni: Bjarni axlar ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Eldjárn Þorgeirsson

Alveg sammála þér í þessum pistli

Kristján Eldjárn Þorgeirsson, 11.11.2008 kl. 17:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Stefán Lárus Pálsson

Höfundur

Stefán Lárus Pálsson
Stefán Lárus Pálsson
Fyrrum sæfari
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband